Enn og aftur það krefst þjálfunar að temja sér jákvæða hugsun. Við reynum að breyta fólki til að þóknast okkur, sem sjaldnast/aldrei er hægt, eðlilega ekki, enda rangt. Við getum í raun bara breytt hvaða augum við horfum á viðkomandi.
Sömuleiðis eigum við það til að verja okkur með því að ráðast til baka á viðkomandi með tilheyrandi tilsvörum og með mis lélegum árangri. Í staðinn fyrir að "tækla" viðkomandi reyndu að skilja hans afstöðu, rifjaðu upp væntumþykjuna og góðar stundir tengt einstaklingnum.
Prófaðu fyrirgefninguna og fjölgaðu jákvæðum viðhorfum/faðmlögunum og kannaðu svo hvernig þér líður eftir þessa leið að lausninni.
Ýmsar heimasíður til fróðleiks...:
island.is redcross lausnin.is kvíðameðferðastöðin stress.is www.vinnumalastofnun.is