Hvað hefur lífið kennt okkur?

Liðsheildin....

Guðmundur Páll Jónsson

Liðsheildin

Allt lífið er maður samstarfsmaður fólks. Allt lífið er maður hluti af liðsheild. Nauðsynlegt er að skiptast á skoðunum því það getur verið hreyfiafl nýrra lausna, tækifæra og bætt líðan fólks. Í samræðu liðsheildarinnar er hlustun nauðsynleg. Maður á alltaf að tala af virðingu til fólks og aldrei af hroka eða tala niður til nokkurs manns.

Þetta verða allir í liðsheildinni að tileinka sér sem mikilvægt skref í að bæta árangur, - í fjölskyldunni, íþróttinni, vinnunni og félagsstarfinu. Liðsheildin er aldrei sterkari en veikasti hlekkurinn í samskiptum fólks.

Guðm. Páll Jónsson

Ingibjörg Pálmadóttir fyrrverandi ráðherra.

Hvað er betra en að eiga
innri gleði, innri frið. 

Guð minn þá er gott
að geta gengið út í sólskinið."
-Pálmi Eyjólfsson frá Hvolsvelli.

Svo kvað hann pápi minn þegar hann áhyggjulaus, horfði yfir farinn veg og naut lífsins á sinn einfalda og kröfulausa hátt.